Kvæðasafn.

Margur getur kvæðið ort,

kastað fram smá stöku. 

Kvæðið er og sérstök sort,

og sett fram í vöku.

Nýtt kvæði er alltaf efst.

Skoðum nú kvæðasafnið.

 

 

26. september 2026.

Kraftur Guðs.

(frið-finnur yrkir)

Soddan var nú málið og mikið fyrir haft.

Fyllibyttan eina sótti í vínið kraft.

Taldi sig þá vera bæði sterkan stór.

Og stærðar bjórsins magi aldrei aftur fór.


  1. „Heyrðu núna karlinn, komdu aðeins nær,

Kauptu eina kippu svo komi annar blær.

Nú er ég að þynnast en þykist sterkur smá.

Þreyttur samt er orðinn og tilveran öll grá.“


Maðurinn sem kom að rétti honum korn.

Karlinn fyrtist yfir og blæs í lítið horn

að fuglarnir í kringum flugu allir burt

og ferðin maður góður. Þeir voru ei um kjurt.


  1. Andartaki seinna sást í svartan feld.

Sveiflast til um manninn og minnti á fyrri eld

sem löngu er nú slökktur, sleikir graftarkaun.

Sleðinn er og brotinn. Hann gagnast ekki baun.


Allt er fullt af lífi en karlinn krömin ein.

Kuldrast þó í skjóli, að naga lítið bein.

Tunnan gaf þó honum þetta skrípi þá.

Högninn var þar einnig og þurfti líka að fá.


  1. Nóttin hún var strembin með sterkan norðanvind

og strekkingurinn úti var honum engin lind.

Hann taldi sig nú deyja og drakk því vínið sitt.

Dagur er samt kominn og hann í sínum pitt.


  1. Og dagur rann upp glænýr og gleðin allt í kring

gengur fram hjá honum sem byrði slær um hring.

Getur ekki sleppt því að slóra og kúldra hér.

Slegin enn og aftur. Samt hann lítið sér.


  1. Glæstar vonir flognar.  Flekinn lekur mjög.

Flestir vinir horfnir hjá karl með engin drög.

Hann skilur ekki málið en skolli komst hér að.

Skellti honum flötum. Um það hann aldrei bað.


  1. Svona leikur okkur lífið sum hver nú.

Lifandi er fólkið. Því skortir bara trú.

Kraftur er því lítill og aflið ekki neitt.

Ást Guðs lifir núna. Er hverjum manni veitt.

Margur hefur gaman af að gera, lesa og stúdera kvæði. Kvæðagerð er skáldskapur og er einkar skemmtilegt og krefjandi form. Frá upphafi byggðar hafa íslendingar glímt við kveðskap. Kvæðið er angi skáldskapar og tekur oft á raunverulegu lífi fólks.

Höfundur Konráð Rúnar Friðfinnsson.  September 2026.