Hér verður fjallað um ýmsikonar málefni.
Vesturbær Hafnarfjarðar. Herjólfsgata.
Við Herjólfsgötu í Hafnarfirði er Sundhöll Hafnarfjarðar. Fyrir tíma Sundhallarinnar, en hún var opnuð 1943, fór öll sundkennsla í Hafnarfirði fram í jökulköldum sjónum, oft á vegum Hallsteins Hinrikssonar.
Vestast á Herjólfsgötu, á Langeyrarmölum, stóð frystihúsið Langeyri, stofnað líklega eftir árið 1934. Oft í Hafnarfirði var talað um Langeyri sem vestfirskt fyrirtæki. Langeyri var í eigu einstaklinga í Hafnarfirði með nokkur viðskipti við Vestfjarðabáta. „Langeyri“ við Herjólfsgötu lagðist af á árunum 1988–1992.
Um aldamótin 1900 reisti Ágúst Flygenring, Íshús Hafnafjarðar, á Mölunum fiskverkunarstöð sem hann átti stutt.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hafði aðstöðu fast við Hafnarfjarðarbryggju. Þar er nú fjöldi blokkaríbúða.
Á fjórðu hæð Bæjarútgerðarinnar var gjaldkerinn. Þar var og skrifstofa forstjóra Bæjarútgerðarinnar.
Gjaldkeri útgerðarinnar greiddi togaramönnunum út laun. Oft átti Bæjarútgerðin í erfiðleikum með að gera upp við sína sjómenn. Allt uppgjör kom lengi vel bæði seint og illa en menn fengu sitt. Seinna komst betra skikk á og var uppgjör seinasta túrs klárt er skipið kom í höfn og 70% túrsins sem skipið var að koma úr greiddur.
Útskipun var eitt starfsheita í frystihúsi Bæjarútgerðarinnar. Útskipun felst í að taka frystan fisk í frystiklefanum, tína kassana á færiband og flytja út úr frystiklefanum og á vörubílspall staðsettan undir skyggninu.
Fyrir kom að sjór í slæmu veðri skilaði upp á Herjólfsgötu stóru grjóti sem bílar sveigðu hjá. Atgangur sjósins gerði að verkum að Herjólfsgata var breikkuð út í sjóinn. Fleiri hafnfirskir ökumenn brosa breiðar í umferðinni er sjórinn hætti að skola upp á Herjólfsgötu grjóthnullungum.
Á 17. júní skemmtunum var dansað á götu sem heitir Smiðjutangi. Sviðið var undir skyggni Bæjarútgerðarinnar. Klukkan 20.00 1965 er hljómsveit Svavars Gests auglýst á sviði á Smiðjutanga. Hún skal leika fyrir dansi frá klukkan 20. 00 til klukkan 23.00. Í þá daga voru þau Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarnason aðalsöngvarar hljómsveitar Svars Gests en sungu sjaldan saman. Hvort þeirra söng þetta kvöld á 17. júní í Hafnarfirði man ég ekki.